Kjaradómur

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 18:01:11 (957)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :

    Það er út af fyrir sig rétt athugað hjá hv. 1. þm. Austurl. að forseta er nokkuð í mun að koma málum hér áfram, enda er það hans hlutverk, en hæstv. fjmrh. hafði eigi kvatt sér hljóðs. Nú er unnt að verða við því, ef þess er óskað, að hæstv. ráðherra taki til máls og skal orðið við því að þessu sinni.