Kjaradómur

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 18:41:59 (973)


     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil eingöngu þakka hv. þm. fyrir þessa leiðréttingu sem skýrir að sjálfsögðu málið, ég hef ekki fleiri orð um það að segja. Ég er sammála hv. þm. um álit Kjaradóms. Kjaradómur áleit þetta jafngilda launalögum. Ég er ekki sammála því áliti. Ég hef látið það koma fram áður að ég tel að Kjaradómur hafi í raun getað komist að hvorri niðurstöðunni sem er á grundvelli laganna eins og þau voru og eins og þau nú eru og ég bendi í þeim efnum því til rökstuðnings að Kjaradómur lét undir höfuð leggjast að gera þessa svokölluðu leiðréttingu árum saman þótt sömu lög hefðu verið til staðar allan tímann.