Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 21:44:30 (997)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Fleiri . . .  ( ÓÞÞ: Ég vil gera örstutta athugasemd.) Forseti gerir sér ekki alveg grein fyrir því við hvað hv. þm. vill gera athugasemd. Samkvæmt 2. mgr. 55. gr. þingskapa er hægt að gera athugasemd um atkvæðagreiðslu en hér fer ekki fram atkvæðagreiðsla, þannig að forseti á svolítið erfitt með veita hv. þm. orðið undir þeim lið samkvæmt þingsköpum. ( ÓÞÞ: Þingsköp.) Hv. þm. kveður sér hljóðs um gæslu þingskapa og það getur forseti leyft.