Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 22:00:12 (1004)

     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
    Herra foreti. Ég andmæli þeirri samlíkingu sem hæstv. ráðherra tók gagnvart Mannréttindadómstólnum. Hins vegar vil ég taka undir það hjá hæstv. ráðherra að hér er ekki um neitt nýmæli að ræða. Íslendingar lutu dönskum dómstól um aldir. Hæstv. ráðherra veit alveg hvað hann er að segja þegar hann fullyrðir að hér sé ekki um neitt nýmæli að ræða.