Tómas Ingi Olrich
:
Virðulegi forseti. Ég sé mig eiginlega tilneyddan til þess að kveðja mér hljóðs um gæslu þingskapa til þess að bera blak af ráðherranum vegna þeirra orða sem hv. þm. Svavar Gestsson lét falla hér áðan. Ráðherrann hefur ekki hlaupist á burt vegna þess máls sem er á dagskrá í dag heldur var það fyrir lifandi löngu ljóst að hann gat ekki verið í þinginu í dag. Ég vil aðeins láta þetta koma fram.