Framhald þingfunda

25. fundur
Þriðjudaginn 06. október 1992, kl. 13:30:36 (1090)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Fundur er settur í Alþingi. Ég vil bjóða alþingismenn velkomna til starfa í þingsalnum að nýju eftir tveggja vikna fundahlé. Ég vona að hin margvíslegu störf þingmanna, sem þeir þurfa að inna af hendi auk hefðbundinna þingstarfa sem almenningur getur nú fylgst svo vel með, hafi gengið vel og verið öllum til góðs. Ég óska þess að störf okkar í þessari fundalotu fram til jóla verði farsæl en óvenjumörg verkefni liggja nú fyrir Alþingi til umræðu og afgreiðslu.