Afbrigði um stefnuræðu forsætisráðherra

25. fundur
Þriðjudaginn 06. október 1992, kl. 13:41:40 (1092)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill geta þess að hinn 24. ágúst sl. voru samþykkt afbrigði frá 73. gr. þingskapa um flutning stefnuræðu forsrh. Samþykkt var að stefnuræðan skyldi að þessu sinni flutt 6. okt. og var það í samræmi við fyrirliggjandi starfsáætlun. Nú hafa hins vegar borist óskir um að stefnuræðan verði flutt tæpri viku síðar, mánudaginn 12. okt., og getur forseti mjög vel fallist á það.