Atkvæðagreiðslukerfi Alþingis

26. fundur
Miðvikudaginn 07. október 1992, kl. 13:35:20 (1114)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Atkvæðagreiðslukerfið hefur verið sett upp en nýir veggskjáir verða væntanlega settir upp einhvern næstu daga. Það hefur aðeins tafist af tæknilegum ástæðum. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að þingmenn sjái þá skjái eða töflur sem eiga að vera hér á veggjum sem hluti atkvæðagreiðslukerfisins.