Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Hér er greinilega við talsverðan vanda að etja í sölu á saltaðri síld. Í Rússlandi neyðast menn til að fresta framkvæmd síldarsamningsins frá 4. des. sl. og er það aðallega vegna gengisfellingar rússnesku rúblunnar. Á öðrum þekktum mörkuðum fyrir saltsíld er svo mikið framboð að þar fer verðið einnig lækkandi. Það er því ljóst að samningar verða ekki gerðir um sölu á næstu vikum. En svo háttar nú til að síldin bíður e.t.v. ekki eftir því. Hún er veiðanleg á vissum tímabilum og sé það ekki gert, þá missum við af henni. Það getur því þurft að taka nokkra áhættu í þessari atvinnugrein. Ég spyr stjórnvöld: Skyldi það ekki borga sig að taka nokkra áhættu þegar atvinnuástand í landinu er jafnslæmt og það er? Ég tel að stjórnvöldum beri skylda til að taka þá áhættu.