Svæðisútvarp Vestfjarða

27. fundur
Fimmtudaginn 08. október 1992, kl. 10:43:40 (1163)

     Fyrirspyrjandi (Jóna Valgerður Kristjánsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. starfandi menntmrh. fyrir þessi svör. Það að þetta skuli þurfa að fara í gegnum Stykkishólm samkvæmt gamalli venju og uppbyggingu er að sjálfsögðu alveg út úr kortinu. Þess má líka geta að í sumar hefur verið unnið að því að leggja ljósleiðara frá þessu svæði, frá suðurhluta Vestfjarða og alla leið til norðursvæðisins. Það eru því möguleikar fyrir hendi á að nýta þennan ljósleiðara. Það sem fyrst og fremst kemur í veg fyrir það er að það kostar mjög mikið að nota hann. Póstur og sími hefur selt þá þjónustu mjög dýru verði. Það er náttúrlega allsendis óviðunandi að samskipti milli þessara tveggja ríkisstofnana þurfi að vera þannig að þegar búið er að byggja upp kerfi fyrir annað fyrirtækið sem hitt ríkisfyrirtækið gæti notað skuli ekki vera eðlilegt samstarf þar á milli.
    Í öðru lagi gat ráðherra þess að þetta væri innanhússmál útvarpsins. Það má þá líka koma fram að Framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins, sem á að standa undir slíkum framkvæmdum, hefur verið skertur. Samkvæmt lögum sem eru í gildi á hann að fá aðflutningsgjöld af sjónvarpstækjum og útvarpstækjum en hann hefur ekki fengið þau frá árinu 1986 heldur hafa þessi aðflutningsgjöld runnið beint í ríkissjóð.