Íslenskt sendiráð í Japan

28. fundur
Fimmtudaginn 08. október 1992, kl. 13:46:58 (1184)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en lengra er haldið í þessari umræðu þarf forseti að koma að tilkynningu. Í dag fer fram utandagskrárumræða að beiðni hv. 15. þm. Reykv. Hún mun hefjast kl. hálffjögur og standa í hálftíma. Þessi utandagskrárumræða er um rétt meiri hluta menntamálaráðs til að leggja niður Bókaútgáfu Menningarsjóðs.