Bókaútgáfa Menningarsjóðs

28. fundur
Fimmtudaginn 08. október 1992, kl. 15:29:37 (1208)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og áður hafði verið tilkynnt hefst nú utandagskrárumræða sem fer fram skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga. Fer umræðan fram að beiðni hv. 15. þm. Reykv. og fjallar um rétt meiri hluta menntamálaráðs til að leggja niður Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Umræðan fer fram með þeim hætti að málshefjandi og viðkomandi ráðherra hafa fimm mínútur hvor í fyrri umferð og tvær mínútur hvor í þeirri síðari. Aðrir þingmenn og ráðherrar hafa tvær mínútur tvisvar sinnum ef því er að skipta.