Kristín Einarsdóttir
:
Virðulegur forseti. Misskilningur, segir hæstv. ráðherra. Það getur vel verið að hann misskilji eitthvað í þessu máli en það er enginn misskilningur að verið er að leggja niður Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Það ætti hann að vita ef hann aflaði sér upplýsinga. Og tilefni þess að ég kvaddi mér hljóðs voru fyrst og fremst vinnubrögðin í þessu máli. Ef það er vilji meiri hlutans hér á Alþingi að leggja niður Menningarsjóð og Bókaútgáfu Menningarsjóðs og menntamálaráð eða hvað sem menn vilja, þá á auðvitað að koma fram frv. um það hér á Alþingi og taka afstöðu til þess máls og síðan er hægt að framkvæma. Það er ekki gert í þessu máli. Það er fyrst og fremst þetta sem ég er að gagnrýna og mér þykir það mjög alvarlegt ef hæstv. ráðherra telur eðlilegt að gengið sé fram hjá Alþingi með þeim hætti sem gert hefur verið. Fjárlög eru ekki æðri öðrum lögum. Það er ekki hægt að fella úr gildi önnur lög með fjárlögum. Það er ekki hægt að fella úr gildi hlutverk Menningarsjóðs með því að setja eitthvert ákvæði inn í fjárlög. Það er misskilningur, bæði hjá hv. þm. Árna M. Mathiesen sem og ráðherranum. Auðvitað takmarka fjárlög umsvif Menningarsjóðs en þau geta ekki lagt hann niður né það hlutverk sem hann hefur. Það er einmitt það sem verið er að gera og ég gagnrýni harðlega þær aðferðir sem hefur verið beitt í þessu máli og ég endurtek það, ég gagnrýni aðferðirnar fyrst og fremst. Það er ekki rétt að málum staðið í þessu máli.