Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Gengið er til dagskrár og fyrir tekið eina dagskrármálið, stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana, sem útvarpað verður og sjónvarpað héðan úr þinghúsinu. Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund en fulltrúar annarra þingflokka 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver flokkur 10 mínútur til umráða. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl., Alþb. og Samtök um kvennalista.
Ræðumenn fyrir Sjálfstfl. verða Davíð Oddsson forsrh. í fyrri umferð, Egill Jónsson, 3. þm. Austurl., og Tómas Ingi Olrich, 5. þm. Norðurl. e., í síðari umferð. Af hálfu Framsfl. tala Steingrímur Hermannsson, 7. þm. Reykn., og Jón Helgason, 2. þm. Suðurl., í fyrri umferð en Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl. í þeirri síðari. Ræðumenn Alþfl. verða Jón Sigurðsson iðnrh. og Gunnlaugur Stefánsson, 5. þm. Austurl., í fyrri umferð en Eiður Guðnason umhvrh. í þeirri síðari. Fyrir Alþb. tala Ólafur Ragnar Grímsson, 8. þm. Reykn., og Guðrún Helgadóttir, 14. þm. Reykv., í fyrri umferð en Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v., í síðari umferð. Af hálfu Samtaka um kvennalista tala Kristín Einarsdóttir, 15. þm. Reykv., og Guðný Guðbjörnsdóttir, 10. þm. Reykv., í fyrri umferð en Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, 6. þm. Vestf., í þeirri síðari. Hefst nú umræðan og til máls tekur hæstv. forsrh., Davíð Oddsson.