Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson)
:
Virðulegi forseti. Af ýmsum ástæðum þarf að endurskoða lög um fæðingarorlof, m.a. til að reyna að draga úr því mikla misrétti sem nú ríkir um réttindi mæðra til fæðingarorlofs eftir því hjá hvaða vinnuveitanda þær starfa. Þá þarf einnig að skoða mæðra- og feðralaun m.a. til samræmis við þær greiðslur, þ.e. barnabætur og barnabótaauka, sem einstæðum foreldrum eru tryggðar í gegnum skattkerfið. Það eru margar ástæður sem gera það að verkum að endurskoða þarf þessa lagabálka. Ef niðurstaðan yrði sú að það væri hægt að veita sömu þjónustu fyrir minna fé mundu menn velja þá leiðina reikna ég með. Ég get náttúrlega ekkert sagt fyrir fram um hver verður niðurstaða endurskoðunar um þessi mál sem er nýlega hafin. Þessi mál er verið að endurskoða út frá mörgum hliðum.