Framkoma ráðherra í utandagskrárumræðum

31. fundur
Miðvikudaginn 14. október 1992, kl. 16:20:53 (1336)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti var að benda hv. þm. á að löngu er liðinn sá tími sem þessi þingfundur átti að standa. Er það mjög nauðsynlegt sem hv. 5. þm. Vestf. telur sig þurfa að ræða undir liðnum gæsla þingskapa? Sé svo getur forseti ekki neitað honum og tekur hann þá til máls.