Málefni Kópavogshælis

32. fundur
Fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 10:30:20 (1339)

     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Að ósk hv. 4. þm. Suðurl. mun ég bera hér fram fsp. sem liggur fyrir á þskj. 77, en það er 75. mál þingsins, sem varðar málefni Kópavogshælis.
    Í kjölfar mikillar umræðu um breytingar á rekstri stofnunarinnar lagði hv. 4. þm. Suðurl. þessa fsp. fram. Bæði henni og mér er ljóst að síðan hefur ýmislegt gerst í þessum málum, en það varð að ráði að bera fsp. engu að síður fram þar sem hv. þm. telur að það væri gott að upplýsa hv. þingheim um hvað er að gerast í þessum málum. Ég tel ekki ástæðu til þess að lesa fyrirspurnirnar en bið hæstv. heilbr.- og trmrh. að svara þeim eftir því sem efni standa til.