Verkefni tilsjónarmanna

32. fundur
Fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 10:52:04 (1349)

     Kristín Einarsdóttir :
    Virðulegur forseti. Vegna þessara síðustu orða hæstv. fjmrh. get ég ómögulega fallist á að þarna hafi verið farið að lögum. Það stendur, eins og hér var lesið áðan, greinilega og skýrt að starfssvið tilsjónarmanna sé að skipuleggja og hafa eftirlit með reikningshaldi og gerð fjárhagsáætlana stofnana, en samkvæmt því bréfi sem menntmrn. sendir tilsjónarmanninum sem hér hefur verið rætt um er sagt að hann eigi að ganga frá fjárhagslegu uppgjöri Menningarsjóðs og Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Það er allt annað mál. Ég tel að ráðherra hafi enga heimild til þess að ganga fram með þeim hætti sem þarna er verið að gera og hann hafi hvorki skipunar- né boðvald gagnvart þessari stofnun til þess að fara fram með þeim hætti sem þarna segir. Það er ekkert í lögum um Menningarsjóð sem heimilar það og það er heldur ekkert í þeim lögum sem hér hefur verið vitnað til sem heimilar þetta. Ég tel því að þarna hafi ekki verið farið að lögum.