Ólafur Þ. Þórðarson
(andsvar)
:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir heiðarlegt svar. Heiðarleiki þess lá m.a. í því að hér var engu lýst yfir varðandi ákvarðanir. Það var ekki sagt í þessu svari: Ef það kemur í ljós að það er að gerast sem hér hefur verið fullyrt mun Alþfl. beita sér fyrir því að leggja fram frv. Því var ekki lofað. Því var ekki lofað að þetta mál gæti orðið stjórnarslitamál, alls ekki. Því var aftur á móti lofað að þetta yrði skoðað með opnum huga. Það er út af fyrir sig jákvætt en góður vilji nær skammt ef menn vilja ekki kosta því til sem þarf.
Sú trú að Sjálfstfl. sé reiðubúinn að breyta þessu finnst mér eiginlega að sé enn þá meiri trú en kom fram hjá 9. þm. Reykv. Það er svo mikil trú að ég hef ekki rekist á aðra jafnmikla á þessu hausti. Vissulega vil ég ekki verða til að ræna nokkurn trú sinni. Þetta mun koma í ljós eins og fleira en það er mikil trú sem þar liggur á bak við hjá hæstv. félmrh. Ég vonaðist eftir því að hæstv. félmrh. segði: Ef þetta er á þann veg að jafnréttisþróunin er stöðvuð, þ.e. konur sækja ekki lengra fram vegna þess að þær eru að hrekjast frá námi, þá mun Alþfl. beita sér fyrir því að breyta þessu.