Hækkun farmgjalda skipafélaganna

39. fundur
Mánudaginn 26. október 1992, kl. 15:28:30 (1525)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hefst nú utandagskrárumræða að beiðni hv. 9. þm. Reykv., Svavars Gestssonar, um hækkun farmgjalda skipafélaganna. Þessi umræða fer fram skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga sem þýðir að hún má standa í hálftíma. Málshefjandi hefur 5 mínútur til framsögu og 2 mínútur í seinni umferð og viðkomandi ráðherra einnig. Aðrir þingmenn og ráðherra 2 mínútur tvisvar sinnum. Hefst nú umræðan og til máls tekur hv. 9. þm. Reykv.