Meðferð áfengissjúkra

40. fundur
Þriðjudaginn 27. október 1992, kl. 14:08:07 (1564)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Telur þingmaðurinn virkilega að hann þurfi að bera af sér sakir? Forseti gat ekki heyrt það. (Gripið fram í.) Ef þingmaður telur sig hafa ástæðu til að bera af sér sakir getur forseti ekki neitað um það. Tekur þá hv. 9. þm. Reykn. til máls og ber af sér sakir. En forseti vill ítreka að þingmenn fari sparlega með þennan rétt að bera af sér sakir.