Tilhögun þingfundar

40. fundur
Þriðjudaginn 27. október 1992, kl. 18:20:12 (1594)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill taka fram að enn er eigi ljóst hvort kvöldfundur verður. Það verður haldið fram fundi fram á kvöldverðartíma og síðan kemur þá í ljós hvernig málum hefur þokað áfram og hvort þá verður þörf á því að hafa kvöldfund. Ég vil minna á að í starfsáætlun Alþingis er gert ráð fyrir að fundir á þriðjudögum geti orðið langir og e.t.v. kvöldfundir en ég sé ekki fram úr því enn þá hvort af því verður nú í kvöld.