Kristín Ástgeirsdóttir
:
Virðulegi forseti. Það er vissulega rétt að gert hefur verið ráð fyrir því að á þriðjudögum yrðu nokkuð langir fundir en ég hef litið þannig á að fyrst og fremst væri rætt um kvöldfundi ef þörf væri á þeim. Ég á erfitt með að sjá að það liggi það mikið fyrir í þinginu nú að þörf krefji að við séum hér langt fram eftir kvöldi. Ég er því ekki alveg sammála þessum skilningi forseta. Það kann að vera að eitthvað skorti á samráð okkar í milli því að varðandi 7. og 8. málið sem ætlunin var að mæla fyrir, ég held að ég fari rétt með, að ráðherrann sem málið heyrir undir sé ekki í húsinu. Þó að við, sem sitjum í efh.- og viðskn., höfum öll skrifað undir nál. þá eru atriði þar sem varða framkvæmd málsins og við vildum gjarnan inna hæstv. viðskrh. eftir og ítreka við hann. Við höfum skrifað undir nál. með þeim fyrirvara.
Þá vil ég líka benda á að einn heill þingflokkur er ekki í húsinu. Þó mér komi það kannski ekki við, tel ég óeðlilegt að ræða mál þegar heill þingflokkur er fjarverandi vegna fundahalda. Það kann að vera að við hefðum mátt bera bækur okkar svolítið betur saman.