Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Þegar rætt var við formenn flokka, formenn þingflokka og í forsætisnefnd var gengið út frá því strax í byrjun að gert væri ráð fyrir löngum fundum á þriðjudögum án þess að semja þyrfti um það sérstaklega.
Út af dagskrá eru tekin 5., 6., 7. og 8. dagskrármál. Fleira liggur ekki fyrir þessum fundi. Fundinum er slitið.