Málþing um Sögu kristni á Íslandi í þúsund ár

41. fundur
Miðvikudaginn 28. október 1992, kl. 13:40:10 (1606)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Nú held ég að forseti verði að biðja hv. þm. að beina þessari fyrirspurn til forseta borgarstjórnar en ekki forseta Alþingis. Hins vegar vill forseti geta þess að a.m.k. forseti Alþingis bindur vonir við að vel takist til með þetta merka verk og er í raun og veru stolt fyrir hönd Alþingis hve vel verkefnið hefur farið af stað og því verið sýndur mikill skilningur, ég held að óhætt sé að segja hjá þjóðinni almennt.