Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að hér mun fara fram utandagskrárumræða klukkan hálffjögur að beiðni hv. 2. þm. Vesturl., Ingibjargar Pálmadóttur, um stefnu stjórnvalda í áfengis- og fíkniefnameðferð. Þessi utandagskrárumræða verður skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga.