Atvinnuleysi á Suðurnesjum

43. fundur
Fimmtudaginn 29. október 1992, kl. 13:34:10 (1699)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið verður til dagskrár er tekin fyrir utandagskrárumræða. Hún fer fram að beiðni hv. 9. þm. Reykn., Önnu Ólafsdóttur Björnsson, um efnið: Til hvaða aðgerða hyggjast stjórnvöld grípa vegna vaxandi atvinnuleysis á Suðurnesjum? Þessi umræða fer fram skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapa sem þýðir að málshefjandi og viðkomandi ráðherra hafa 5 mínútur í fyrri umferð og 2 mínútur hvor í þeirri síðari. Aðrir hv. þm. og ráðherrar hafa 2 mínútur hver. Hefst þá umræðan.