Matthías Bjarnason
:
Virðulegi forseti. Ég minni á að sjávarútvegurinn er undirstaða atvinnulífsins í landinu. Það hefur verið samdráttur og kreppa lengi. Fólki hefur fækkað í framleiðslubyggðarlögum og flutt í stórum stíl á liðnum árum til þjónustubyggðarlaganna. Undirstaða er að bresta þegar sjávarútvegurinn er að bresta. Hér koma menn og berja sér á brjóst og segja: Þetta er í athugun. Gengið verður að vera óbreytt. Það þarf ekki að taka tillit til neins. Það kemur í ljós að við gengisfall sterlingspundsins koma tekjur af rækjuiðnaði einum í landinu til með að minnka um 400 millj. Enn þá eru til menn og það í framvarðarsveit þjóðfélagsins sem berja hausnum við steininn og láta sem þeim komi þetta ekkert við og skilji það ekki.