Kaup á björgunarþyrlu

45. fundur
Þriðjudaginn 03. nóvember 1992, kl. 15:31:37 (1785)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti upplýsti áðan, eins og kom fram í máli hv. 4. þm. Norðurl. v., að tveir hæstv. ráðherrar væru í húsinu og benti jafnframt á að vítt og breitt um húsið væri hátalarakerfi og því færi það ekki fram hjá neinum ( StG: Það var óskað eftir þeim.) hvaða umræður fara hér fram. Forseti hefur hugsað sér að gera ráðherrum viðvart um að þessi umræða fari fram og hvaða athugasemdir hafa komið fram. Meira getur forseti ekki gert í þeim efnum.