Kaup á björgunarþyrlu

45. fundur
Þriðjudaginn 03. nóvember 1992, kl. 16:24:16 (1796)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Vegna fyrirspurnar hv. þm. hefur að sjálfsögðu enginn ráðherra neitað því að vera við þessa umræðu, a.m.k. hef ég engin skilaboð fengið um slíkt enda væri það afar óvenjulegt. Hitt er öllum hv. þm. kunnugt að ekkert sérstakt er við þessa umræðu eða umræður í þinginu almennt þegar fjallað er um þingmannafrv. Þá er það hvergi nærri algengt að ráðherrar séu viðstaddir. ( StG: Ég hef óskað eftir því.) Forseti hefur látið kanna það hvort ráðherrar séu í húsinu nú og svo er ekki. ( StG: Hafa þeir ekki bílakost til að komast á milli húsa?)