Viðvera ráðherra

45. fundur
Þriðjudaginn 03. nóvember 1992, kl. 16:36:17 (1804)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Í framhaldi af þeim umræðum sem hér hafa orðið þá vil ég gjarnan óska upplýsinga um það hvort ekki séð von á ráðherrum í dag. Ég á tillögu á dagskrá, sem 13. mál þessa fundar. Ég vildi mjög gjarnan að menntmrh. yrði viðstaddur þá umræðu og ég vil gjarnan að forseti kanni það fyrir mig hvort hans sé að vænta í dag. Ég verð að segja það að maður reiknar frekar með því að ráðherrar séu viðstaddir þegar mál eru til umræðu sem snerta þeirra ráðuneyti og finnst það sannast að segja sjálfsögð kurteisi af þeirra hálfu að vera viðstaddir umræðu og fylgjast með því sem hér gerist og snertir þeirra málaflokka.