Eignarhald á Brunabótafélagi Íslands

47. fundur
Fimmtudaginn 05. nóvember 1992, kl. 10:49:34 (1884)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Hæstv. forseti. Ég hlýddi á mál hæstv. heilbr.- og trmrh. og heyrði hann lesa upp skýringar á því hver væri eigandi Brunabótafélags Íslands. Mér fannst við þann lestur að það færi ekki á milli mála að það væru þeir sem tryggðu, þeir sem greiða tryggingagjöldin, sem væru eigendurnir. Ég vil fá það upplýst hér og nú ef hæstv. trmrh. hefur lesið eitthvað annað upp en þann skilning að það séu þeir sem tryggja hjá félaginu sem séu eigendurnir.