Forseti (Gunnlaugur Stefánsson)
:
Hv. 2. þm. Vestf. hefur óskað að gera athugasemd aftur. Ég verð að tilkynna hv. 2. þm. Vestf. að samkvæmt þingsköpum hefur hann talað einu sinni í eina mínútu og gert athugasemd og forseta er ekki heimilt að gefa honum aftur orðið. ( ÓÞÞ: Gera örstutta athugasemd samkvæmt þingsköpum.) Ég verð að tilkynna hv. þm. að hann hefur ekki beðið um orðið til þess að gera athugasemd ( ÓÞÞ: Jú.) um þingsköp né atkvæðagreiðslu en ég hef tilkynnt honum að honum er ekki heimilt að taka hér til máls um þennan dagskrárlið til að gera aftur stutta athugasemd á grundvelli þingskapa. --- Hann hefur fallið frá orðinu.