Forseti (Gunnlaugur Stefánsson)
:
Forseta er ljúft að svara hv. 2. þm. Vestf. því að það er ekki hlutverk og verkefni forseta þingsins að leggja efnislegt mat á það hvort fyrirspurnum hafi verið svarað eður ei. Það eru engin ákvæði þingskapa er fela forseta það verkefni og það hlutverk. Umræðum um fyrirspurnina er lokið og fyrirspurninni er svarað.