Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir það svar sem hér var gefið. Hið formlega svar var á þann veg að það væri ekki ætlun ráðherrans að beita sér fyrir breytingum en hið raunverulega svar var aftur á móti á þann veg að það yrðu breytingar því það var greint frá því að Hagstofan ætlaði sér að fjölga í sínu úrtaki og jafnframt að ráðherra mundi beita sér fyrir því að lesa þau gögn ofan í kjölinn sem er mikil framför miðað við það sem verið hefur þegar þessar athuganir hafa nánast farið beint í ruslafötuna.
Ég tel að kjarni málsins sé vissulega sá sem fram kom hjá hv. þm. Svavari Gestssyni, að við getum ekki unað við ástandið eins og það er. Þarna verða að verða breytingar og þessar kannanir eru forsendur fyrir því að svo geti orðið.