Sturla Böðvarsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Vegna ummæla hv. 5. þm. Vestf. tek ég fram að það hefur enginn samningur verið gerður um Gilsfjarðarbrú í tengslum við þá till. sem hér er til umfjöllunar. Þingmaðurinn, sem er þingmaður Vestf. og hlýtur að koma að þeirri ákvörðun sem snýr að Gilsfjarðarbrú og ég vona að hann styðji
það verk. Það kom ekki fram hjá honum í þessari umræðu.
Hins vegar væri fróðlegt að heyra hvort Alþb. ætli sér, þegar það kemst í þá aðstöðu, að taka aftur til við rekstur Skipaútgerðar ríkisins.