Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 15:00:28 (2033)

     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég vona að það fari ekki á milli mála og hv. 3. þm. Vestf. sé ljóst að Gilsfjarðarbrú verður ekki byggð nema fyrir peninga. Á hvað sviði þeir sérfræðingar eru sem hann ræddi við er mér ekki ljóst og mætti gjarnan nafngreina þá ef þeir eru ekki ósýnilegir. En Gilsfjarðarbrú verður ekki byggð nema fyrir peninga og það er verið að takast á um þá hluti í umræðunni.