Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 15:17:02 (2043)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hvað varðar það að atvinnutækifæri Ferðamálaráðs séu aðeins fugl í skógi vil ég einnig benda á að Ferðamálaráð hefur ekki fengið þær fjárveitingar sem það á samkvæmt lögum. Það á að fá ákveðið hlutfall, 10% minnir mig af tekjum af Fríhöfninni, en það hefur alltaf verið skorið við nögl. Ráðið hefur þess vegna ekki haft aðstöðu til að koma þeim tillögum sem það hefur viljað í framkvæmd.