Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 16:22:06 (2068)

     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Af nokkuð langri reynslu minni við að reikna út dæmi er ljóst í mínum huga að dæmið verður aldrei rétt reiknað nema það sé reiknað til enda. Ég hygg að hv. 3. þm. Austurl. ætti að halda áfram með sitt dæmi og segja þingheimi hversu mikið fé verður til framkvæmda í vegamálum á næstu árum þegar farið verður að endurgreiða þau lán sem á að taka á næsta ári til að auka framkvæmdir. Niðurstaðan verður auðvitað sú að fé til framkvæmda mun ekki verða meira heldur minna sem nemur vaxtakostnaði.