Sementsverksmiðja ríkisins

51. fundur
Miðvikudaginn 11. nóvember 1992, kl. 15:41:19 (2122)

     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. 17. þm. Reykv. er mikill bjartsýnismaður og gerir manni upp skoðanir. Ég vil benda á að það sem verið er að gera með þessu frv. um Sementsverksmiðju ríkisins er kannski fyrst og fremst það að færa meiri völd í hendur hæstv. iðnrh. Hann er með þessu að taka til sín mikið vald. Hann á að skipa stjórnina til að byrja með og hann fer með hlut ríkisins. Hans vald í þessu fyrirtæki verður því býsna mikið og ég sé ekki mikla lýðræðisþróun í slíku fyrirkomulagi.