Fyrirspyrjandi (Kristín Ástgeirsdóttir)
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Ég tel að þetta mál hafi nú skýrst. Það er greinilegt að það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað gert skuli í þessu máli enda liggur kannski ekkert sérstaklega á því að ákveða framtíð þessara húsa. En það liggur þeim mun meira á að hefja undirbúning að afmælinu því það er orðið stutt til stefnu. Ég fagna því að það er greinilega komin hreyfing á það mál og við munum þá væntanlega ræða hér þegar þáltill. kemur fram hvernig að þeim málum verður staðið.