Hvalveiðar

52. fundur
Fimmtudaginn 12. nóvember 1992, kl. 11:16:16 (2147)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég er á þveröfugri skoðun við það sem fram kom hjá síðasta ræðumanni. Ég held að það sé brýnt að fara afar varlega í þessum efnum og að heildarhagsmunir Íslendinga hljóti að ráða andspænis hvalveiðunum. Ég vil bara minna á að núna fyrir örfáum dögum bárust fréttir af því að verið væri að ræða um það í Bandaríkjunum að setja bann á innflutning á eldisfiski frá Noregi vegna þess að þeir hafa hafið örlitlar hvalveiðar. Það er nýbúið að kjósa varaforseta í Bandaríkjunum sem er einn af þeirra helstu umhverfisverndarmönnum. Ég veit reyndar ekki hvaða afstöðu hann hefur varðandi hvalamál. Við verðum bara að átta okkur á því að þetta er miklu, miklu stærra mál en eitthvert smástríð okkar við umhverfisverndarmenn. Það eru ákveðin sjónarmið sem eru ríkjandi og ná inn í stjórnkerfi margra ríkja, ekki bara í Bandaríkjunum heldur í Bretlandi og víðar og ég tel miklu brýnna að við snúum vörn í sókn og beinum umræðunni að meðferð dýra almennt. Ég verð að segja það hér, forseti, að við tvö sem sóttum fund Evrópuráðsins núna í október sáum þar mynd um meðferð dýra í Evrópu, flutning á dýrum sem verið er að selja og það er eitthvert það hryllilegasta sem ég hef séð. Við þurfum að opna þessa umræðu, ekki að vera hér í eilífri vörn. Það eru lífshagsmunir okkar Íslendinga að geta selt fisk, en við verðum að fara varlega í þessu máli.