Sturla Böðvarsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sem kom fram mjög greinilega í máli hv. 5. þm. Vesturl. að það skiptir okkur Íslendinga mjög miklu máli að hvalveiðar hefjist og þessi stofn sjávarins verði nýttur eins og við Íslendingar höfum alla tíð gert.
En ég vil einnig vekja athygli á því í þessari umræðu að í enn einu málinu klofnar Kvennalistinn. Það kom fram að það eru mjög mismunandi sjónarmið innan Kvennalistans í hvalveiðimálum og mér sýnist að hluti Kvennalistans í þessu máli sé að verða kaþólskari en páfinn.