Sjóður til að styrkja efnilega íþróttamenn

53. fundur
Fimmtudaginn 12. nóvember 1992, kl. 16:37:57 (2245)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Vegna þess að hér kom fram að mjög margir stæðu að því frv. sem hér er verið að ræða en þess getið sérstaklega að þar væri enginn fulltrúi Kvennalistans vil ég taka fram að það er ekki vegna andstöðu Kvennalistans við þetta mál. Ég veit ekki til þess að til okkar hafi verið leitað að vera meðflutningsmenn. En ég minni á að á síðasta þingi fluttum við till. til þál. þar sem sérstaklega var mælt með því að auka fjárframlag ríkisins til þess að styrkja íþróttaiðkun kvenna.