Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil beina eftirfarandi fyrirspurn til hæstv. fjmrh.: Hvenær hefjast endurgreiðslur vegna þeirra lána sem taka á á næsta ári til að auka framkvæmdir í vegagerð? Hvenær hefjast þær endurgreiðslur og á hve löngum tíma á að endurgreiða þau lán?