Endurgreiðslur lána vegna framkvæmda í vegagerð

55. fundur
Þriðjudaginn 17. nóvember 1992, kl. 13:37:22 (2297)

     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Það er ljóst af svörum ráðherra að engar ákvarðanir hafa verið teknar í þessu skyni en hugmyndir ráðherrans stefna til þess að endurgreiðslur hefjist á árinu 1996 og taki nokkur ár. Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra hvort hann eða ríkisstjórnin hafi gert sér grein fyrir því hvort þessar endurgreiðslur leiði til þess að verkum sem nú þegar eru á vegáætlun verði þar með frestað þar til endurgreiðslutíma lýkur.