Viðskiptabankar og sparisjóðir

55. fundur
Þriðjudaginn 17. nóvember 1992, kl. 16:00:11 (2319)


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hæstv. viðskrh. talaði um ríkisbankana áðan eins og þar væri ekkert aðhald og

þar væru engin ljós sem blikkuðu ef komið væri að hættumörkum. Nú minni ég hæstv. ráðherra á þær reglur sem taka gildi um næstu áramót um eiginfjárstöðu, BIS-reglurnar, sem veita þarna verulegt aðhald og gefa öll merki sem til þarf. Ég hef reyndar þá trú á ríkiskerfinu að þar séu nokkuð breytt sjónarmið. Þau hafa verið að breytast á síðustu árum í þá veru að menn vinna þar ekkert síður að því að verja sína hagsmuni og verja okkar sameiginlegu fjármuni. Ég sé því ekkert sem bendir til þess að menn fari nema brýna nauðsyn beri til að standa þannig að rekstri ríkisbanka að ríkið þurfi að leggja þar til mikla fjármuni. Vissulega getur til þess komið. Eins og hér hefur verið rökstutt er það engin trygging fyrir því að ríkið þurfi ekki að leggja fram fjármuni að bankarnir séu í hlutafélagsformi. Auk þess ítreka ég það sem ég benti á áður að ef við viljum taka þá ákvörðun, sem ég held að sé rétt, að hafa hluta af okkar bankakerfi í íslenskri eigu þá gerum við það ekki öðruvísi en það verði í formi ríkisbanka.