Gilsfjarðarbrú

56. fundur
Miðvikudaginn 18. nóvember 1992, kl. 15:58:02 (2369)

     Sturla Böðvarsson :
    Virðulegi forseti. Vegna orða hv. 2. þm. Vesturl. verð ég að taka það fram að ég gat þess ekki í minni ræðu áðan að Gilsfjarðarbrú hefði ekki verið á dagskrá þegar aukið fé til framkvæmda í vegamálum kom til umfjöllunar. Það sem ég var að segja og kom glöggt fram var að ég tel að framkvæmdir í Gilsfirði séu ekki á dagskrá með þeim hætti núna að tilefni sé til að hafa sérstaka utandagskrárumræðu um það mál í þinginu eða sérstakar fréttayfirlýsingar frá hv. 5. þm. Vestf. um svikin loforð. Gilsfjarðarbrú er að sjálfsögðu á dagskrá og hefur verið þegar verið er að fjalla um vegáætlun og framkvæmdir við vegagerð. Það er mín von og trú að þær framkvæmdir þurfi ekki að dragast og að það takist að undirbúa það verk þannig að hægt verði að bjóða þar út framkvæmdir sem allra fyrst.
    Ég vil taka fram og taka undir með hæstv. umhvrh. að ég tel að hið aukna fjármagn, sem hefur fengist til vegagerðar á þessu ári, muni hraða því að hægt verði að ráðast í framkvæmdir við Gilsfjörðinn en það þarf eðlilegan undirbúning. Ég held að Vegagerðin muni leggja mjög ríka áherslu á undirbúning þess verks strax og hægt verður. Verið er að undirbúa þá vinnu, m.a. í tengslum við undirbúning framkvæmda á næsta ári.
    Að öðru leyti vil ég segja við þessa umræðu að ég tel að það sé ekki svo mikilvægum verkum til framdráttar að þyrla upp í kringum þau ágreiningi eins og hér hefur verið gerð tilraun til.