Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegi forseti. Ég vil í þessum fáu orðum mínum benda á það að lykillinn að lausn þessa máls hlýtur að liggja hjá ríkisstjórn og stjórnarflokkum. Það þjónar litlum tilgangi þó að fyrir fimm eða sex mánuðum hafi verið búið að koma á blað ákveðnum tillögum til lausnar meðan ríkisstjórn hefur ekkert gert til þess að koma því í þann búning í gegnum Alþingi með lagasetningu að hægt væri að vinna eftir tillögunum. Út frá þessu sjónarmiði er það sjónarspil sem formaður þingflokks Alþfl. og hæstv. ráðherra hafa sett hér upp eilítið hjákátlegt og sérstaklega í ljósi þess að hér er um að ræða háalvarlegt mál. Það verður að gera þá kröfu til landbrh. að hann búi þessar tillögur í form þingmáls þannig að hægt sé að taka á málinu. Ég hef átt viðræður við fulltrúa Stofnlánadeildar að undanförnu og ég treysti því að þar séu menn tilbúnir til þess að taka á málinu. ( Forseti: Tími hv. þm. er liðinn.) Ég ætla aðeins að benda á einn hlut til viðbótar sem ekki hefur komið fram. Hann er sá að verði ekki höfð gát á varðandi niðurfellingu veða Stofnlánadeildar, þá geta í vissum tilfellum aðrir veðhafar skotist inn í og málið þá ónýtt.