Aðild Íslands að Vestur-Evrópusambandinu

58. fundur
Fimmtudaginn 19. nóvember 1992, kl. 15:02:03 (2462)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
    Virðulegur forseti. Ég verð að biðjast velvirðingar á því að það skolaðist heldur betur til þegar kom að spurningunni um heildarkostnaðarhlutdeild Íslendinga. Ég verð að viðurkenna að þessar upplýsingar voru fengnar með símtali núna áðan og upplýsingar gefnar í síma. Staðreyndirnar eru þessar áður en lengra verður haldið: Fjárhagsáætlun Vestur-Evrópusambandsins á sl. ári var 2,8 millj. pund eða 280 millj. ísl. kr. Hlutdeild Íslands upp á 0,1% er því 2,8 millj. en ekki sú tala sem ég nefndi.